Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Vertu þá velkomin á Náttúrubarnahátíð á Ströndum. Þar gefst þér tækifæri til að finna og rækta náttúrubarnið í þér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri! Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og náttúrubörn á öllum aldri! Náttúrubarnahátíðin verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Aðgangseyrir er 3.000 kr. en hægt er að kaupa sig inn á hvern dag fyrir 1.500 kr. Það er frítt fyrir hátíðargesti að gista í tjaldi á Kirkjubóli sem er rétt hjá Sævangi. Einnig er frábært tjaldsvæði á Hólmavík og ýmsir gististaðir í nágrenninu. Sundlaugin á Hólmavík býður gestum hátíðarinnar sem eru 14 ára og yngri frítt í sund meðan á hátíðinni stendur og eldri borga hálft gjald. Dagskrá hátíðarinnar:
Föstudagurinn 28. júlí 17:00 Stutt og skemmtileg gönguferð. Gengið frá Húsavíkurkleif að Sævangi. 18:30 Setning hátíðarinnar. Dagrún Ósk yfirnáttúrubarn segir nokkur orð. Gengið að veðurupplifunarstöðinni og framkvæmdur veðurgaldur til að tryggja gott veður alla helgina. 19:00 Tónleikar með hinni frábæru hljómsveit Ylju. 20:15 Náttúrubarnakviss. Skemmtilegur spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna. Sauðfjársetur á Ströndum býður hátíðargestum upp á vöfflur, djús og kaffi að kostnaðarlausu. 22:30 Fjörusöngur. Laugardagurinn 29. júlí 11:00 Náttúrujóga, hugleiðsla og hljóðslökun með koparhörpu með Arnbjörgu hjá Jógahjartanu. 12:00 Sirkus sýning. Hluti sirkushópsins Melodic Objects sýnir Same Picture – Different Pose. 12:30 Náttúrufjör: Jurtalitun, unnið úr ull, unnið úr rekavið, tálgað, Strandahestar, Ynja Art með myndlistarsýninguna Hlýnun, náttúrumarkaður, opið hús í tilraunastofunni og plastdýragarðinum. Ljósmyndamaraþon og fleira. 14:00 Trommutúttur: skemmtileg smiðja þar sem sköpunarkraftur og efniviður úr umhverfinu og náttúrunni er nýttur til trommu- og hljóðfæragerðar. Í framhaldinu verður haldinn trommuhringur þar sem allur hópurinn lætur ljós sitt skína og trommuna óma. Listrænn stjórnandi smiðjunnar er Arnar Snæberg Jónsson. 14:15 Skemmtileg og fræðandi gönguferð þar sem plöntur í umhverfinu verða skoðaðar með Hafdísi Sturlaugsdóttur hjá Náttúrustofu Vestfjarða. 16:00 Útieldun: spennandi smiðja þar sem náttúrubörn læra að kveikja eld, umgangast hann og náttúruna af virðingu og um leið nýta afurðir náttúrunnar í mat og drykk. 16:15 "Hvers vegna á ég að vernda náttúruna og hvernig fer ég að því?" Stórfróðlegt spjall með umhverfisstjórnunarfræðingnum Stefáni Gíslasyni. 18:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið. 20:00 Snillingurinn Svavar Knútur með tónleika. 21:30 Drauga- og tröllasögur í sagnahúsinu! Sunnudagurinn 30. júlí 11:00 Skemmtilegt spjall um sjósund með þjóðfræðingnum Pétri Húna Björnssyni. Hefur þig alltaf langað að prófa en aldrei þorað? Nú er tækifærið! Þeir sem áhuga hafa láta vaða í sjóinn eftir fróðleikinn. Við mælum með að skella sér í heita pottinn á Hólmavík eftir sjóinn! 13:00 Hinn stórskemmtilegi töframaður Ingó Geirdal með sýningu. 14:00 Útileikir á Sævangsvelli. 16:00 Fjölskyldufjallganga. Kirkjubólshringurinn genginn. Gangan tekur um það bil 2 klst. og hækkun er 220 m.
1 Comment
Núna í sumar voru Náttúrubarnaskólinn og Strandabyggð í samstarfi um Skapandi sumarstörf. Þá fóru ungmenni í vinnuskólanum í skapandi sumarstörf hluta tímans undir leiðsögn Dagrúnar Óskar yfirnáttúrubarns. Það var mikið fjör og gerðu krakkarnir ýmislegt skemmtilegt. Þau bjuggu meðal annars til listaverk fyrir Hamingjudaga á Hólmavík þar sem fólk gat velt því fyrir sér hvað hamingjan er í raun og veru, bjuggu til hengirúm úr rekavið og neti á Sauðfjársetrinu og risastórann draumafangara. Auk þess sem þau skreyttu tilraunastofu Náttúrubarnaskólans og gengu frá henni svo hægt væri að taka hana í notkun. Þau tóku einnig þátt í verkefni sem heitir Hólmavík - Íbúabyggð og ferðamannastaður og komu upp með hugmyndir um hvað myndi gera bæinn að betri stað til að búa á og einnig til að heimsækja. Þetta verkefni gekk mjög vel og söfnuðust rúmlega 100 hugmyndir en niðurstöður vinnunar er hægt að nálgast í Facebook hóp með sama nafni. Ætlunin er síðan að skrifa skýrslu þar sem eitthvað af hugmyndunum verða lagðar fram og sjáum við þær því vonandi verða að veruleika á næstu árum. Þá stóðu þau fyrir viðburði á Hólmavík sem hét Heyhey- sumarfjör. Þar voru leikir, vatnsrennibraut og meira fjör og mættu rúmlega 50 manns á viðburðinn. Þau sáu um skipulagningu, undirbúning, markaðssetningu og stjórnun sumarfjörsins. Krakkarnir aðstoðuðu líka við undirbúning Náttúrubarnanámskeiða, komu með hugmyndir af leikjum, földu hamingjusteina í fjörunni, þróuðu leiki fyrir Furðuleikana og fleira. Einnig aðstoðuðu þau við undirbúning Náttúrubarnahátíðar á Ströndum sem er haldin helgina 28.-30. júlí. Þá bjuggu þau til ljósmyndamaraþon sem notast verður við á hátíðinni, útidót sem þau smíðuðu úr rekavið, Náttúrubarnasýningu sem verður á Sauðfjársetrinu þessa helgi, fuglaspil til að þekkja fugla og margt fleira.
|
FréttirHér koma nýjar fréttir og viðburðir Náttúrubarnaskólans inn. Endilega fylgist með! Greinar
June 2024
Flokkar |