Hér koma nokkrar erfiðar vísbendingar um staðsetningu rúnanna:
Við krossins hús á háum hól, er eina rún að finna. Margir fara þar um jól, en nú skal leikinn vinna. Hjá grænu húsi með góðum mat, er næsta rún, það er ekkert plat. Í gömlum bæ býr enginn lengur. Bíður þar einn lukkufengur? Þar sem galdragrös á sumrin spretta, sérðu kannski táknið rétta. Vatn rennur um listaverkið, vel er falið næsta merkið. Hér er stundum syfjað fólkið smáa og sparkað oft í tuðruknöttinn knáa. Þar sem ljósið blikkar löngum stundum, í litlu húsi, eina rún við fundum. Í stórum potti fólkið soðnar fljótt, á bak við eyrun aðrir blotna skjótt Átta táknum skal svo raða á réttan máta, rúnaleiksins leysist við það gáta. Vonandi skemmtiði ykkur vel! Náttúrubarnaskólinn og Þjóðfræðistofa
0 Comments
|
FréttirHér koma nýjar fréttir og viðburðir Náttúrubarnaskólans inn. Endilega fylgist með! Greinar
June 2024
Flokkar |