Náttúrubarnahátíðin verður með aðeins minna sniði í sumar en áður vegna covid-19. Í þetta skipti verður hún einn dagur í stað þriggja. Engu að síður verður full dagskrá af fjöri og við hlökkum til að sjá ykkur.
Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Á Náttúrubarnahátíð á Ströndum þann 11. júlí gefst þér tækifæri til að finna og rækta náttúrubarnið í þér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri! Náttúrubarnahátíðin verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi, þar sem Náttúrubarnaskólinn er til húsa. Náttúrubarnahátíðin er fjölskylduhátíð og verður aðgangur ókeypis Laugardagurinn 11. júlí 11:00 Náttúrujóga með Hvatastöðinni 12:00 Rölt eftir stígnum Sjávarslóð og framkvæmdur Veðurgaldur 12:00 Hægt að kaupa súpur og samlokur í Sævangi 12:30 Magnað atriði frá Sirkus Íslands 13:00 Spennandi útismiðja með Jóni Víðis 14:30 Náttúruhljóðsmiðja, hljóðum úr náttúrunni safnað og notuð í tónverk með aðstoð tækninnar, Auður Viðarsdóttir er listrænn stjórnandi smiðjunnar 16:00 Gönguferð í teistuvarpið, kíkt á teistuunga sem búa í kössum í fjörunni 17:00 Strandahestar, bogfimi og opið hús í tilraunastofunni 17:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur í Sævangi 19:00 Töfrasýning með Jóni Víðis 20:00 Stuðboltinn Raggi Torfa stjórnar fjörusöng 21:30 Trölla- og draugasögur í Sagnahúsinu Við skulum öll passa vel upp á sóttvarnir. Náttúrubarnahátíðin í ár er smærri í sniðum en áður og verður hún haldin á einum degi þann 11. júlí að langmestu leyti utandyra Náttúrubarnahátíð 2020 er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða
0 Comments
Leave a Reply. |
FréttirHér koma nýjar fréttir og viðburðir Náttúrubarnaskólans inn. Endilega fylgist með! Greinar
June 2024
Flokkar |