Náttúrubarnaskólinn
  • Heim
  • Um Náttúrubarnaskólann
  • Fréttir
  • Fróðleiksmolar!
  • Á döfinni!
  • Hafðu samband

Dagskrá Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2019

7/18/2019

0 Comments

 
Picture
Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Á Náttúrubarnahátíð á Ströndum helgina 19.-21. júlí gefst þér tækifæri til að finna og rækta náttúrubarnið í þér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri!

Náttúrubarnahátíðin verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi, þar sem Náttúrubarnaskólinn er til húsa.

Náttúrubarnahátíðin er fjölskylduhátíð og verður aðgangur ókeypis.

​Föstudagur 19. júlí
17:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið.
18:00 Formleg setning hátíðarinnar. Gengið að veðurupplifunarstöðinni og framkvæmdur veðurgaldur til að tryggja gott veður alla helgina.
18:00 Hægt að kaupa súpu og grillaðar pylsur (bæði grænmetis og ekki) í Sævangi.
19:00 Mögnuð töfrasýning með Jóni Víðis.
20:00 Náttúrubarnakvissið, æsispennandi spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna. Hægt verður að kaupa vöfflur í Sævangi.
22:00 Melasysturnar Ellen og Árný Björnsdætur halda uppi fjörinu í fjörusöng.

Laugardagurinn 20. júlí
11:00 Náttúrujóga með Esther Ösp hjá Hvatastöðinni. Fullkomin leið til að komast í tengsl við sitt innra náttúrubarn.
12:00 Undrin á plánetunni jörð, stórskemmtilegt spjall með Stjörnu Sævari fyrir börn og fullorðna.
13:00 Náttúra og vísindi! Básar þar sem hægt er að ganga á milli og kynnast ólíkum rannsóknum sem tengjast náttúrunni, sjónum, gróðri og dýralífi. Strandahestar verða á staðnum, opið hús í tilraunastofunni og plastdýragarðinum. Súpa og grillaðar pylsur (bæði kjöt og grænmetis).
15:00 Tilraunasmiðja með Jóni Víðis.
16:30 Náttúrupopp með Ellen Scheving, poppað yfir opnum eldi.
17:15 Leikhópurinn Miðnætti sýnir stórskemmtilega tón- og leiklistarbræðinginn Sögur af nautum.
18:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur og súpu (bæði grænmetis og ekki) í Sævangi.
20:00 Tónleikar og skemmtun með Jónsa í Svörtum fötum.
21:30 Drauga- og tröllasögur í sagnahúsinu!

Sunnudagurinn 21. júlí
11:00 Skemmtilegt spjall um sjósund með Pétri Húna og Hafdísi Hrund og kjörið tækifæri til að prófa að skella sér í sjóinn.
13:00 Sirkus Íslands skemmtir í Sævangi!
13:30 Spennandi náttúrusmiðja með Arfistanum Ástu Þórisdóttur.
15:00 Leikjasmiðja með Jóni Víðis á útivellinum í Sævangi.
16:00 Fjöruplokk! Plokkað í fjörunni við Sævang.
0 Comments

Náttúrubarnahátíð 19.-21. júlí 2019

5/8/2019

0 Comments

 
Picture
Við erum á fullu að undirbúa Náttúrubarnahátíðina sem verður haldin helgina 19.-21. júlí í sumar! Við erum ótrúlega spennt að segja ykkur frá því hvað verður um að vera en þar er alveg öruggt að hún verður stútfull af allskonar útivist, fróðleik og skemmtun þannig að það er um að gera að taka helgina frá. Í ár verður aðgangur að hátíðinni ókeypis. Hægt er að tjalda í nágrenninu og kaffihús og matur á staðnum! 
0 Comments

Náttúrubarnahátíð á Ströndum 28.-30. júlí 2017

7/26/2017

0 Comments

 
Picture
Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Vertu þá velkomin á Náttúrubarnahátíð á Ströndum. Þar gefst þér tækifæri til að finna og rækta náttúrubarnið í þér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri! Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og náttúrubörn á öllum aldri! 


Það verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna á Náttúrubarnahátíðinni, þar verða tónleikar með Ylju og Svavari Knút, töframaðurinn Ingó Geirdal mætir á Svæðið, framkvæmdur verður veðurgaldur, útieldunarsmiðja, trommusmiðja, fjallgöngur, náttúrujóga, sjósund, hestar, draugasögur, spurningaleikur, fróðleikur og fjör!
0 Comments

Kvöldvaka Náttúrubarnaskólans!

8/12/2016

0 Comments

 
Picture
Föstudaginn 19. ágúst verður haldin kvöldvaka í Náttúrubarnaskólanum! Þar verður boðið upp á grillaðar pylsur og djús. Farið verður í leiki, sagðar draugasögur og sungið við varðeld og kostar 1200 kr. á kvöldvökuna,. 


Hlökkum til að sjá ykkur!
0 Comments

Miðvikudagssull í Náttúrubarnaskólanum

8/7/2016

0 Comments

 
Miðvikudaginn 19. ágúst verður fyrsta miðvikudagsnámskeið Náttúrubarnaskólans! Þá verður mikið fjör en það verður sullþema! Við ætlum að draga fram vatnsrennibrautina, vaða í sjónum, búa til jurtaseyði og fleira svo komiði með aukaföt! 

Skráning í síma 661-2213, natturubarnaskoli@gmail.com eða á facebook ​síðu Náttúrubarnaskólans!
Picture
0 Comments

Helgarnámskeið Náttúrubarnaskólans

7/31/2016

0 Comments

 
Picture
Helgina 6.-7. ágúst er helgarnámskeið í Náttúrubarnaskólanum. Námskeiðið er frá kl. 13:00-17:00 bæði laugardag og sunnudag. Um helgina ætlum við að gera tilraunir, fara í gönguferðir og leiki, skoða fugla og plöntur. Við ætlum líka að búa til bú eins og börn léku sér oft í í sveitum áður fyrr. Það kostar 6000 kr. á helgarnámskeiðið og er innifalið djús og kökur! 
0 Comments

Kaffikvörn Náttúrubarnaskólans

7/21/2016

0 Comments

 
Picture
Þriðjudaginn 26. júlí kl. 20:00 verður skemmtilegur spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna haldinn í Sævangi. Leikurinn er í anda Pub Quiz þar sem 2 - 3 eru saman í liði og reyna að svara allskonar spurningum sem flestar tengjast náttúrunni á einn eða annan hátt! Boðið verður upp á vöffluhlaðborð fyrir 1200 kr. 

Hlökkum til að sjá ykkur!
0 Comments

Lærðu að gera jurtaseyði!

7/18/2016

0 Comments

 
Jurtanámskeið fyrir fullorðna þar sem við munum fræðast um notkun plantna á fyrri tímum, tínslu og varðveislu kl. 19:30-22:30 í Sævangi, búin verða til 4 mismunandi jurtaseyði sem hvert um sig þjónar mismunandi tilgangi. Hafdís Sturlaugsdóttir sér um kennsluna. Verð er 3000 kr. kaffi og með því innifalið. Skráning er í síma 661-2213, á natturubarnaskoli@gmail.com og á Facebook! 

Hlökkum til að sjá ykkur :D
Picture
0 Comments

Landinn kemur í Náttúrubarnaskólann!

7/18/2016

0 Comments

 
Picture
Föstudaginn 21. júlí verður auka námskeið í Náttúrubarnaskólanum í tilefni þess að Landinn er að koma í heimsókn! Námskeiðið verður aðeins 2 klst. frá kl. 13:00-15:00! Þá verður brot af því besta, við ætlum að fara að skoða teistu ungana, búa til jurtaseyði og fleira skemmtilegt! 

Skráning er í síma 661-2213, á natturubarnaskoli@gmail.com og á facebook síðu Náttúrubarnaskólans.
0 Comments

Náttúrubarnaskólinn sér um safnasnappið!

7/16/2016

0 Comments

 
Picture

Dagana 19.-21. júlí verður Náttúrubarnaskólinn með safnasnappið sem er Snapchat sem gengur á milli safna og fólk getur sýnt frá starfinu.

Það verður nóg um að vera þar sem fyrsta daginn verður Náttúrubarnaskólinn með námskeið í jurtaseyðisgerð, á fimmtudeginum er náttúrubarnanámskeið og á föstudeginum er Landinn að koma í heimsókn! 

Endilega addið Safnasnapp og fylgist með okkur!

Einnig er Náttúrubarnaskólinn sjálfur á Snapchat undir nafninu ​natturuborn
0 Comments
<<Previous

    Á döfinni

    Þetta er það sem er næst á dagskrá hjá Náttúrubarnaskólanum!

    Viðburðir

    July 2019
    May 2019
    July 2017
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    August 2015
    July 2015

    Flokkar

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Um Náttúrubarnaskólann
  • Fréttir
  • Fróðleiksmolar!
  • Á döfinni!
  • Hafðu samband